Kolbrún Björt Sigfúsdóttir og Ragnar Ísleifur Bragason hafa verið valin leikskáld Leikritunarsjóðs Leikfélags Reykjavíkur 2024-2026. Þetta var tilkynnt á 127. afmælisdegi leikfélagsins, en það var stofnað 11

Kolbrún Björt Sigfúsdóttir og Ragnar Ísleifur Bragason hafa verið valin leikskáld Leikritunarsjóðs Leikfélags Reykjavíkur 2024-2026. Þetta var tilkynnt á 127. afmælisdegi leikfélagsins, en það var stofnað 11. janúar 1897. Samkvæmt upplýsingum frá leikhúsinu voru Kolbrún Björt og Ragnar Ísleifur valin úr hópi 17 umsækjenda og taka við af Birni Jóni Sigurðssyni, en verk hans verður hluti af verkefnaskrá Borgarleikhússins á næsta leikári. Leikskáldin hefja störf við leikhúsið í upphafi næsta leikárs.