George Clooney segist í nýlegu viðtali við Sky News enn njóta þess að leika, en sér finnist miklu skemmtilegra að leikstýra. Nýjasta leikstjórnarverkefni hans er myndin The Boys in the Boat sem fjallar um róðrarlið Washington-háskóla sem vinnur til…
George Clooney segist í nýlegu viðtali við Sky News enn njóta þess að leika, en sér finnist miklu skemmtilegra að leikstýra. Nýjasta leikstjórnarverkefni hans er myndin The Boys in the Boat sem fjallar um róðrarlið Washington-háskóla sem vinnur til gullverðlauna á Ólympíuleikunum í Berlín 1936. „Það er mun skemmtilegra [að leikstýra], því þá hefur maður meiri stjórn. Ég fæ að stýra þeim og þarf ekki sjálfur að læra að róa.“