Vesturbærinn Alex Þór Hauksson gerði samning við KR-inga í gær.
Vesturbærinn Alex Þór Hauksson gerði samning við KR-inga í gær. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Knattspyrnumaðurinn Alex Þór Hauksson er genginn til liðs við KR-inga og hefur samið við þá til ársloka 2026 eftir að hafa spilað með Öster í sænsku B-deildinni undanfarin þrjú ár. Alex er 24 ára gamall miðjumaður og lék með meistaraflokki…

Knattspyrnumaðurinn Alex Þór Hauksson er genginn til liðs við KR-inga og hefur samið við þá til ársloka 2026 eftir að hafa spilað með Öster í sænsku B-deildinni undanfarin þrjú ár. Alex er 24 ára gamall miðjumaður og lék með meistaraflokki Stjörnunnar frá 2017 til 2020 en þar spilaði hann 72 úrvalsdeildarleiki og skoraði fimm mörk. Hann var í liði Stjörnunnar sem varð bikarmeistari árið 2018, í fyrsta og eina skiptið í sögu félagsins.