Hermann Nökkvi Gunnarsson
hng@mbl.is
Lítið flæðir af kviku úr nyrðri gossprungunni sem opnaðist við Grindavík á sunnudag og ef fram fer sem horfir styttist í goslok.
Þetta segir Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands, í samtali við Morgunblaðið.
„Gosið er orðið mjög veikt en enn þá í gangi. Það hefur dregið mikið úr því og það er orðið mjög lítið – líklegt að það sé ekki langt eftir,“ sagði Magnús í samtali
við Morgunblaðið seint í gærkvöldi.
Hann segir það líklegt að svipuð atburðarás sé að eiga sér stað og í gosinu í desember. Þá hófst gos af miklum krafti en lognaðist út af á nokkrum dögum.
„Það er enn þá mjög lítið af hrauni búið að koma upp, þarna á þessum stað [Sundhnúkagígaröðinni], og enn þá er bara búið að koma upp svona 10% af því sem kom upp í Fagradalsfjalli,“ segir hann.
Spurður hvort líklegt sé að eldgos haldi áfram að verða á nokkurra mánaða fresti, eins og að undanförnu, segir hann það mögulegt.
Ef horft sé til sögunnar sé þessari atburðarás fjarri því lokið, þótt það sé vitaskuld háð óvissu.
Flæðið úr syðri sprungunni sem opnaðist við jaðar byggðarinnar í Grindavík á sunnudag hefur stöðvast og gosopið lokast.