— Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Þessi hnúfubakur virtist hafa fundið eitthvað ætilegt í höfninni í Hafnarfirði í gær og athafnaði sig upp við bryggjuna en hnúfubakar eru tækifærissinnar þegar kemur að fæðu. Gaf hann sér góðan tíma til að sýna sig og sjá aðra

Þessi hnúfubakur virtist hafa fundið eitthvað ætilegt í höfninni í Hafnarfirði í gær og athafnaði sig upp við bryggjuna en hnúfubakar eru tækifærissinnar þegar kemur að fæðu. Gaf hann sér góðan tíma til að sýna sig og sjá aðra.

Vakti það töluverða athygli bæjarbúa og annarra sem áttu leið hjá eins og ljósmyndara blaðsins. Ef til vill getur hnúfubakurinn borið kennsl á byggingar því hann hélt sýningu fyrir starfsmenn Hafrannsóknastofnunar, sem eru með skrifstofur í nærliggjandi húsi.