Bára Magnúsdóttir æfir leikfimi í Kramhúsinu.
Bára Magnúsdóttir æfir leikfimi í Kramhúsinu. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Ég hef alla tíð hreyft mig, alltaf synt og gengið og svo stunda ég golf á sumrin. Að bæta við leikfiminni í Kramhúsinu er mjög góð viðbót, þessar styrkjandi æfingar og jafnvægisæfingar eru veruleg bót fyrir líkamlega heilsu

Ég hef alla tíð hreyft mig, alltaf synt og gengið og svo stunda ég golf á sumrin. Að bæta við leikfiminni í Kramhúsinu er mjög góð viðbót, þessar styrkjandi æfingar og jafnvægisæfingar eru veruleg bót fyrir líkamlega heilsu. Eftir tímana líður mér mjög vel, ég er laus og liðug í líkamanum, það léttir yfir manni og ég hef meiri orku. Skemmtilegasta við leikfimina er að þetta er svo góð blanda, mér finnst upphitunin góð, gólfæfingarnar erfiðar en fínar og reynir passlega á. Bæði styrkir og liðkar, eykur þolið líka, bara alveg frábærar æfingar í alla staði,“ segir Bára sem passar líka upp á mataræðið.

„Það sem hefur komið kannski smá á óvart með aldrinum er að jafnvægið hrapar, en þá er einmitt mjög gott að gera jafnvægisæfingar og maður verður að vera duglegur að gera þær. Þessar æfingar gera það að verkum að ég er léttari á mér, það er auðveldara að fara upp stiga og þær eru góðar fyrir göngurnar mínar. Ég finn minni verki við að hreyfa mig, en verst er hreyfingarleysið þegar maður er með verki, þá er einmitt nauðsynlegt að hreyfa sig. Hreyfingin hefur sannarlega jákvæð áhrif á heilsuna, bæði líkamlega og andlega heilsu, það helst í hendur,“ segir Bára.

Bára segir ekki síður mikilvægt að rækta félagslega þáttinn. „Félagsskapurinn skiptir máli samhliða æfingunum, mér finnst hópurinn rosalega góður, við spjöllum fyrir tímann og einstaka sinnum fáum við okkur kaffi eftir tímann. Hópurinn hefur farið út að borða og við stefnum á að gera það aftur fljótlega, það er skemmtilegt og við kynnumst betur.“

Höf.: Guðrún Selma Sigurjónsdóttir |