Hafsteinn Hauksson
Hafsteinn Hauksson
Hafsteinn Hauksson hefur tekið við starfi aðalhagfræðings Kviku banka. Hann hefur starfað við greiningar í fjárfestingateymi Lundúnaskrifstofu Kviku frá 2019. Hafsteinn lauk meistaragráðu í fjármálum og hagfræði frá London School of Economics árið…

Hafsteinn Hauksson hefur tekið við starfi aðalhagfræðings Kviku banka. Hann hefur starfað við greiningar í fjárfestingateymi Lundúnaskrifstofu Kviku frá 2019.

Hafsteinn lauk meistaragráðu í fjármálum og hagfræði frá London School of Economics árið 2015 og útskrifaðist sem hagfræðingur frá Háskóla Íslands árið 2012. Hann hefur starfað í Lundúnum frá lokum meistaranáms árið 2015, fyrst hjá ráðgjafarfyrirtækinu Newstate Partners og síðar hjá GAMMA Capital Management Ltd.

Hafsteinn var á árum áður hagfræðingur í greiningardeild Arion banka.