Tilboð Aston Villa og FCK hafa bæði boðið í Hákon Rafn.
Tilboð Aston Villa og FCK hafa bæði boðið í Hákon Rafn. — Morgunblaðið/Óttar
Enska úrvalsdeildarfélagið Aston Villa og danska félagið FC Köbenhavn hafa bæði lagt fram tilboð í Hákon Rafn Valdimarsson, leikmann Elfsborg í Svíþjóð og landsliðsmarkvörð í knattspyrnu. Hákon er eftirsóttur eftir frábæra frammistöðu með Elfsborg á …

Enska úrvalsdeildarfélagið Aston Villa og danska félagið FC Köbenhavn hafa bæði lagt fram tilboð í Hákon Rafn Valdimarsson, leikmann Elfsborg í Svíþjóð og landsliðsmarkvörð í knattspyrnu. Hákon er eftirsóttur eftir frábæra frammistöðu með Elfsborg á síðasta tímabili, þar sem hann var útnefndur besti markvörður sænsku úrvalsdeildarinnar. Tilboð Villa hljóðar upp á rúmlega tvær milljónir evra og tilboð FCK upp á 1,7 milljónir evra.