Róbert Regenberg Óskarsson fæddist 10. ágúst 1950. Hann lést 30. desember 2023. Útförin fór fram 13. janúar 2024.

Blessuð og kær sé minning Róberts Reginbergs Óskarssonar,

10. ágúst 1950 – 30. desember 2023.

Á hvarmi lífsins

Er ég geng niður í fjöruna

að leita að kyrrð

er kyrrðin þar á ferð

að leita að manni.

Og horfumst í augu

tvö augnablik

við blikandi himin

og blikandi haf.

„Sjáumst!“

Og hún festir mig í minni

og ég

festi hana hér.

(Ísak Harðarson)

Við kveðjum okkar kæra Róbert sem var borinn til grafar frá Ólafsvíkurkirkju laugardaginn 13. janúar 2024. Róbert og Björg systir kynntust ung að árum og bjuggu alla tíð samhent fjölskylda í Ólafsvík. Það er sárt að sjá á eftir þessum góða manni sem var okkur svo kær, samofinn lífi okkar frá fyrstu tíð. Nú stendur hann sterkur, sólbrúnn og fagur á nýrri strönd mót hafi og himni, laus úr viðjum illvígs krabbameins sem hann barðist við. Ljóslifandi í minningu okkar er hversu góða og hlýja nærveru Róbert hafði, var þögull og kíminn, sjómaður af heilum hug og alltaf til staðar fyrir fjölskyldu sína. Við þökkum fyrir allar góðar og gefandi stundir, minning um góðan og traustan vin lifir.

Við sendum samúðarkveðju til elsku Bjargar, barna og barnabarna – samhryggjumst innilega með ást og hlýju til ykkar allra.

Rín Elíasdóttir, Bjarni Egilsson og fjölskylda.