Sýningin Birting var opnuð um helgina í Listasafni Ísafjarðar á annarri hæð í Safnahúsinu Eyrartúni. Á þessari fyrstu sýningu ársins hjá safninu eru dregin fram verk úr safneigninni. Verkin eru sögð ólík en eigi það sameiginlegt að höfundar þeirra séu konur. Listakonurnar sem eiga verk á sýningunni eru Guðbjörg Lind, Karolína Lárusdóttir, Jean Larson, Nína Gautadóttir, Nína Tryggvadóttir, Ragnheiður Jónsdóttir og Sara J. Vilbergsdóttir.
„Brátt klifrar sólin yfir fjallsbrúnir og verkin á sýningunni birtast okkur í nýju ljósi. Sum rísa úr dimmri geymslu, önnur koma frá stofnunum innan bæjarins og eitt verkanna fær nýjan stað í sama húsi,“ stendur skrifað í fréttatilkynningu. Verkið „Pönnukökuveislan“ eftir Karolínu Lárusdóttur er meðal þess sem er til sýnis og er það sagt skapa „tilhlökkun með sólarkaffið handan við hornið og því tilvalið að njóta sýningarinnar með hækkandi sól“. Sýningin stendur til 17. febrúar.