Markmið mitt er að aðstoða eins marga og ég get við að feta sömu braut og ég hef farið og vonandi hjálpa þeim að ná sambærilegum árangri og ég hef náð,“ segir Hildur M. Jónsdóttir stofnandi og eigandi Heilsubankans en hann var opnaður 2006 við góðar undirtektir.
Hildur hafði verið að kljást við heilsuáskoranir meira og minna allt sitt líf og leitaði stöðugt leiða til að bæta líðan sína. Bjó hún orðið yfir miklum fróðleik um heilsutengd málefni og var hvött til þess að miðla þekkingu sinni á einhvern hátt þannig að fleiri gætu notið góðs af og úr varð vefurinn Heilsubankinn.is.
Á sama tíma fannst henni vanta vettvang þar sem fólk gæti fræðst um leiðir til að byggja upp og bæta heilsu sína, til viðbótar við þær aðferðir sem hefðbundna heilbrigðiskerfið bauð upp á. Þegar Hildur svo náði loksins árið 2015 að taka heilsu sína algjörlega í eigin hendur setti hún saman prógramm eftir áralanga rannsóknarvinnu og náði loks fullum bata. Þetta fór að spyrjast út og fólk byrjaði að leita til Hildar eftir sambærilegri hjálp. Þetta leiddi til þess að Hildur byrjaði með sín geysivinsælu námskeið á netinu og hafa yfir eitt þúsund manns farið í gegnum námskeiðin hennar.
Með stofnun Heilsubankans tókst Hildi að sameina þetta tvennt; að miðla fróðleik og skapa þekkingarbanka fyrir heilsutengd málefni. „Það eru sem betur fer frábærir hlutir að gerast í samfélaginu varðandi áherslur þegar kemur að heilsu og heilbrigði, en því miður þá henta þessar áherslur oft betur fólki sem er við fulla heilsu fyrir og er með úthald og getu,“ segir Hildur.
„Það sem ég brenn fyrir og legg áherslu á í minni vinnu er að fólk sem hefur oft verið langveikt og með alvarlega sjúkdóma, og nær heilsu með minni hjálp, muni ekki þurfa á minni hjálp að halda í framtíðinni heldur muni þessar lausnir sem ég byggi á komast inn í almenna heilbrigðiskerfið og fólk fari að fá raunverulega hjálp við að ná fullri heilsu. Almenna heilbrigðiskerfið býr því miður ekki í dag yfir góðum verkfærum til að hjálpa fólki í krónískum heilsuvanda.“
Tók stjórnina í eigin hendur
Hildur segist hafa lent á „algjörum vegg“ árið 2012 en verið búin að stefna þangað mjög lengi, í raun frá barnæsku. „Ég byrjaði að safna á mig sjúkdómsheitum allt frá fyrstu árunum en ég hunsaði alltaf merkin og setti bara undir mig hausinn, eins og sönnum Íslendingi sæmir,“ segir hún. „Það var búið að greina mig með alls kyns gigtarsjúkdóma, meltingarsjúkdóma, skjaldkirtilssjúkdóm, hjartavandamál, krónískt mígreni sem var algjörlega að fara með mig, síþreytu og fleira. Að auki var ég í raun búin að lenda þrívegis í alvarlegri kulnun og átti engin góð verkfæri til að koma mér út úr því ástandi að fullu.“
Hún segir að það hafi tekið sig langan tíma að átta sig á að hefðbundna heilbrigðiskerfið var ekki með neinar góðar lausnir fyrir hana. „Yfir lengri tíma varð ég bara þreyttari, þyngri og verkjaðri, þannig að það kom að því að það var annaðhvort að gefast bara upp fyrir lífinu og lifa því eftir einhverjum lágmarksgæðum eða taka stjórnina í eigin hendur,“ segir Hildur.
„Ég er með nokkurra ára háskólanám að baki en lífið hefur fyrst og fremst verið minn kennari. En ég trúi samt að öll þekking og allt nám nýtist okkur alltaf í öllum okkar verkefnum, þó þau hafi jafnvel ekki beint með það að gera hvað við lögðum stund á í námi. Ég tel að einmitt þessi færni, að nýta sína eigin færni og áhuga á skapandi hátt, sé framtíðin fyrir okkur, um leið og gervigreindin fer að verða okkur hæfari í að setja fram þá þekkingu sem fyrir hendi er.“
Hildur verður með frítt kynningarnámskeið á næstunni um hvað við þurfum að gera til að styðja líkamann í því verkefni að komast til heilsu. Nánari upplýsingar eru á Heilsubankinn.is.
Alltaf brunnið fyrir femínisma
Í marsmánuði mun Hildur fara af stað með FEM, vettvang fyrir konur til að vinna að þróun hugmynda og finna leið til að koma þeim á framfæri á netinu. Þetta er verkefni sem gengur út á að efla konur í eigin rekstri eða fara af stað með rekstur, til að taka frumkvæði og láta drauma sína rætast. Hægt er að fá grunnmynd að verkefninu á vefsíðunni Fem.is, en hugmyndin hafði lengi blundað í Hildi.
„Ég hef alltaf brunnið rosalega fyrir femínisma,“ segir hún. „Um 25% af stofnuðum fyrirtækjum eru í eigu kvenna og 75% þá í eigu karlmanna. Ég hef fylgst mikið með umræðunni um af hverju konur eru ekki sýnilegri í atvinnulífinu á æðstu stöðum og það er mikið búið að berjast fyrir að ná jafnari hlut í til dæmis stjórnarsetu kvenna, en ég tel að á meðan konur séu ekki jafngildandi í atvinnulífinu í eigin rekstri og séu ekki að búa til peninga í sama magni og karlar, þá verði aldrei jafnrétti. Eingöngu 2% af fyrirtækjum kvenna ná veltu yfir 100 milljónir á ári.“
Hildur segir eina mest spennandi áskorunina við verkefnið vera þá miklu breidd sem hægt sé að skoða í rekstri á netinu. „Ég er að leggja áherslu á konurnar og það sem mér finnst svo spennandi er að hugmyndirnar sem við getum unnið að eru algjörlega óþrjótandi,“ segir hún.
„Það eru engin takmörk fyrir því hvað er hægt að fara með á netið. Ég hef fylgst mikið með konum í netrekstri erlendis því ég hef verið sjálf í þessu í nokkur ár og hugmyndirnar sem þær eru að vinna með eru gríðarlega fjölbreyttar. Þetta byggist allt á styrkleikum þínum, færni og áhuga, frekar en einhverri menntun þannig lagað. Þú getur farið af stað með svo ólík svið og hugmyndir.“
Aukið frelsi á netinu
Í gegnum rekstur sinn yfir árin hefur Hildur þjónustað tugi þúsunda manns hjá tveimur farsælum netfyrirtækjum sem hún setti á stofn á mjög ólíkum sviðum. Atvinnurekstur á netinu hefur upp til hópa hentað konum mjög vel, að sögn Hildar. „Það sem við fáum oft í gegnum rekstur á netinu er aukið frelsi,“ segir Hildur og telur upp: „Aukið frelsi með staðsetningu, tíma, tekjumöguleika, rekstrarútfærslur og alls konar aðra þætti. Þegar karlmenn eru spurðir hvers vegna þeir stofna fyrirtæki þá er algengasta svarið hjá þeim einfaldlega til að þéna peninga en konur svara oftar að þær vilji auka frelsi sitt, geta valið verkefni og vinnutíma. Það er munur á kynjunum þarna.“
Hildur segir muna gífurlega miklu þegar landsvæði heftir ekki starfsgetu eða þjónustu. „Þegar við erum að vinna með netrekstur, þá erum við að færa okkur úr því að selja klukkustundirnar okkar í sólarhringnum í að geta þjónustað fleiri í einu á stærra svæði. Þá erum við búin að brjóta þetta þak á tíma og tekjumöguleikum,“ segir hún.
Hugmyndin með FEM er að styðja konur, sem eru nú þegar í rekstri eða dreymir um að fara af stað með einhver spennandi verkefni, til að koma þeim hugmyndum yfir á netið.
Á Íslandi myndast oft mikil sérþekking og færni því við erum svo fá, þannig að við þurfum oft að skapa okkur sérstöðu. Slík verkefni eru upplögð til að fara með yfir á netið. En bókstaflega allt sem þú kannt, hefur góða færni í, elskar að gera og getur leiðbeint öðrum með, getur mögulega orðið grunnur að farsælum netrekstri.
Hægt er að skrá sig á póstlista á fem.is til að fylgjast nánar með framvindunni á þessu spennandi verkefni.