Eitt verka Kristbergs.
Eitt verka Kristbergs.
Kristbergur Ó. Pétursson opnaði sýningu í Glerrýminu, sýningarrými á þriðju hæð Bókasafns Hafnarfjarðar, í gær, þriðjudaginn 23. janúar. Í tilkynningu segir að í verkunum á sýningunni fái „viðfangsefni Kristbergs frá bernsku- og unglingsárum…

Kristbergur Ó. Pétursson opnaði sýningu í Glerrýminu, sýningarrými á þriðju hæð Bókasafns Hafnarfjarðar, í gær, þriðjudaginn 23. janúar. Í tilkynningu segir að í verkunum á sýningunni fái „viðfangsefni Kristbergs frá bernsku- og unglingsárum hans nýtt líf þar sem hann tekur þau til upprifjunar, endurskoðunar og endurvinnslu. Í verkunum er ólíkum miðlum blandað saman svo sem dúkristum, bleksprautuprenti, texta og málun.“

Kristbergur stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1979-85 og við Ríkisakademíuna í Amsterdam 1985-88. Hann hefur haldið fjölmargar sýningar á verkum sínum heima og erlendis. Þá hefur hann einnig gefið út bækur með verkum sínum og eina ljóðabók.