Sýningin D-vítamín, sem opnuð verður í kvöld kl. 20, er sögð „aukaskammtur skapandi orku úr myndlistarlífi samtímans hér á landi“. Á sýningunni koma saman 15 upprennandi listamenn með ný og nýleg verk í anda þeirrar hefðar sem mótast hefur í áralangri sýningaröð Listasafns Reykjavíkur í D-sal

Sýningin D-vítamín, sem opnuð verður í kvöld kl. 20, er sögð „aukaskammtur skapandi orku úr myndlistarlífi samtímans hér á landi“. Á sýningunni koma saman 15 upprennandi listamenn með ný og nýleg verk í anda þeirrar hefðar sem mótast hefur í áralangri sýningaröð Listasafns Reykjavíkur í D-sal. Nýverið var þar haldin 50. sýningin og „ákveðið að bregða aðeins út af vananum af því tilefni“. Nú teygir verkefnið sig út fyrir veggi D-salar og öll efri hæð Hafnarhúss er lögð undir.