30 ára Sverrir ólst upp í Stóru-Sandvík í Sandvíkurhreppnum hinum forna og býr þar. Hann er með BS-gráðu í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík og starfar eins og er á Litla-Hrauni. Hann rekur búðina og er almennur fangavörður

30 ára Sverrir ólst upp í Stóru-Sandvík í Sandvíkurhreppnum hinum forna og býr þar. Hann er með BS-gráðu í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík og starfar eins og er á Litla-Hrauni. Hann rekur búðina og er almennur fangavörður. Sverrir spilar handbolta með Selfossi og áhugamálin eru samvera með fjölskyldu og vinum og útivera.


Fjölskylda Maki Sverris er Andrea Thorsteinson, f. 1998, leikskólakennari. Sonur þeirra er Adam Páll, f. 2023. Foreldrar Sverris eru hjónin Ari Páll Ögmundsson, f. 1956, bóndi í Stóru-Sandvík, og Rósa Jóhanna Guðmundsdóttir, f. 1963, sjúkraliði á Ási í Hveragerði.