Norður
♠ Á65
♥ ÁD6
♦ 8752
♣ Á82
Vestur
♠ 432
♥ 975
♦ DG1096
♣ G6
Austur
♠ 987
♥ K842
♦ Á4
♣ K973
Suður
♠ KDG10
♥ G103
♦ K3
♣ D1054
Suður spilar 3G.
Það er enginn vafi á því að NS eiga heima í 3G, enda skiptingin jöfn og 26 punktar á milli handanna. En borðleggjandi er geimið ekki og fór raunar oftar niður en það vannst þegar spilið kom upp í fyrstu umferð meistaramótsins í Hörpu. Skýringin liggur í laufinu þar sem sagnhafi þarf að taka réttan pól í hæðina.
„En það er eins og það er,“ segir Magnús mörgæs, sem hefur meiri áhuga á sögnum. Englendingurinn Mike Bell var með spil vesturs í sýningarleik á BBO og opnaði á 3♦! „Andy Robson-áhrifin,“ segir Magnús og það er ábyggilega eitthvað til í því. Tor-Erik Hoftaniska og Geir Helgemo voru í NS og þeir sögðu báðir pass: þrír niður og 150 í NS.
„Létt í vasa miðað við mögulegan 600-kall í þremur gröndum.“