Akureyri Valborg Lúðvíksdóttir aðstoðardeildarstjóri og Bernard Gerritsma deildarstjóri á geðdeild Sjúkrahússins á Akureyri.
Akureyri Valborg Lúðvíksdóttir aðstoðardeildarstjóri og Bernard Gerritsma deildarstjóri á geðdeild Sjúkrahússins á Akureyri.
Margrét Þóra Þórsdóttir skrifar frá Akureyri Legudeild geðdeildar Sjúkrahússins á Akureyri, SAk, er enn í sama bráðabirgðahúsnæði og starfsemin hófst í fyrir um 38 árum.

Margrét Þóra Þórsdóttir

skrifar frá Akureyri

Legudeild geðdeildar Sjúkrahússins á Akureyri, SAk, er enn í sama bráðabirgðahúsnæði og starfsemin hófst í fyrir um 38 árum.

Samkvæmt úttekt landslæknisembættisins fullnægir húsnæðið ekki þeim kröfum sem til starfseminnar og umfangs hennar eru gerðar og það sé barn síns tíma. Ýmsum ábendingum var beint til heilbrigðisráðherra í kjölfar úttektarinnar, m.a. um öryggistengd atriði, skort á heimsóknarrýmum og útisvæði fyrir sjúklinga.

Sinnir Norður- og Austurlandi

Geðdeild SAk er eina starfandi geðdeildin utan höfuðborgarsvæðisins og sinnir öllu Norður- og Austurlandi. Hún skiptist í legudeild, dag/göngudeild fullorðinna ásamt barna- og unglingageðteymi, BUG-teymi. Mikið álag hefur verið á deildinni undanfarin ár sem náði hámarki á nýliðnu ári þegar rúmanýting var tæplega 85% en hafði verið um 75% árið þar á undan.

Bernard Gerritsma deildarstjóri og Valborg Lúðvíksdóttir aðstoðardeildarstjóri á geðdeild SAk segja að stærð deildarinnar hafi frá upphafi, árið 1986, haldist óbreytt.

„Á þeim tíma átti húsnæðið að vera til bráðabirgða en hefur verið óbreytt í nær fjóra áratugi,“ segir Bernard. Legudeildin er með 10 rúm ásamt tveimur plássum í dagmeðferð sem nýtt er í stutta eftirfylgd sjúklinga í framhaldi af innlögn ef þörf er á.“

Úttektir sýna að núverandi húsnæði er óviðunandi

„Stærð deildarinnar hefur reynst krefjandi og ekki hefur verið rými til að anna að fullu þeirri eftirspurn sem er eftir bráðaþjónustu. Einnig hafa úttektir eftirlitsaðila sýnt fram á að núverandi húsnæði legudeildar sé óviðunandi. Hluti af daglegu meðferðarstarfi deildarinnar fer fram í húsnæði göngudeildar, sem til húsa er í tengibyggingu við SAk, en sú fjarlægð er óhentug þegar við erum með ákveðinn hóp einstaklinga sem þarf meira eftirlit,“ segir Valborg.

Gert er ráð fyrir að geðdeildin flytji yfir í nýja legudeildarálmu sem stefnt er á að rísi við sjúkrahúsið á næstu árum. Þau segja það vissulega til mikilla bóta til framtíðar litið.

Á þessari stundu sé hins vegar ekki hægt að segja fyrir um hvaða breytingar það hafi í för með sér fyrir deildina, þar sem undirbúningsvinna sé enn í fullum gangi. Meðferðarrými í nýbyggingunni muni þó taka mið af núverandi stöðu og framtíðarsýn í geðheilbrigðisþjónustu.

Flestar innlagnir á legudeild geðdeildar koma í gegnum bráðamóttöku SAk. Innlagnir í bráðameðferð taka mið af sjúkdómsástandi einstaklings og heildrænu mati á því hvort þörf sé á þjónustu í innlögn eða í annars konar eftirfylgd. Á deildinni er unnið á þrískiptum vöktum hjúkrunar ásamt almennu meðferðarstarfi sem er sinnt af þverfaglegu teymi. Þá er sérfræðingur í geðlækningum á vakt allan sólarhringinn.

Álag aukist undanfarin ár

Álag í bráðaþjónustu geðdeildar hefur aukist síðastliðin ár en að sögn Bernards og Valborgar er ekki bein skýring á þeirri aukningu. Þau nefna að í tölfræði megi sjá 10% aukningu frá árinu 2017 í innlögnum einstaklinga með geðraskanir af völdum vímuefna.

Þá hafi orðið áberandi aukning í hópi yngra fólks eftir geðþjónustu bæði vegna geðraskana í tengslum við vímuefnavanda sem og annars konar geðraskana. Ástæður þessa geti verið af ýmsum toga en þau segja að svo virðist sem umræður um kröfur samfélagsins eigi ákveðinn þátt í geðheilsu yngra fólks.

Samvinna er, að þeirra sögn, við önnur meðferðarúrræði eftir þörfum en ljóst er að álag er líka á geðþjónustu LSH sem og heilsugæslu. Þá sé deildin einnig í samvinnu við SÁÁ séu einstaklingar metnir svo að þeir geti nýtt sér þjónustu þar, en biðlistar eru þó inn í meðferðarúrræði SÁÁ.

„Með auknu álagi í geðheilbrigðisþjónustu er mikilvægt að rýna í þjónustuferla og starfsumhverfi. Nú hefur verið lagt af stað með umfangsmikið verkefni í þróun geðþjónustu á SAk þar sem haft er að leiðarljósi að huga að umbótum til að auka skilvirkni og gæði þjónustunnar sem við veitum. Til þessa verkefnis hefur geðdeildin (legudeild, dag- og göngudeild og BUG-teymi) góðan stuðning framkvæmdastjórnar sem og nýtur stuðnings og vinnu utanaðkomandi ráðgjafa í breytingastjórnun. Þetta verkefni fer vel af stað og verður spennandi að fylgjast með þeirri umbótavinnu,“ segja þau Bernard og Valborg í samtali við Morgunblaðið.

Höf.: Margrét Þóra Þórsdóttir