Íslenska landsliðskonan Natasha Anasi og stöllur hjá norska liðinu Brann tryggðu sér í gær sæti í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta með 1:0-útisigri á Slavia Prag. Natasha var í byrjunarliði Brann og lék fyrstu 59 mínúturnar
Íslenska landsliðskonan Natasha Anasi og stöllur hjá norska liðinu Brann tryggðu sér í gær sæti í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta með 1:0-útisigri á Slavia Prag. Natasha var í byrjunarliði Brann og lék fyrstu 59 mínúturnar. Benfica er einnig komið í átta liða úrslit. Benfica nægði jafntefli gegn Rosengård, 2:2. Guðrún Arnardóttir lék allan leikinn með Rosengård en Svava Rós Guðmundsdóttir var ekki með Benfica vegna meiðsla.