Það dreymir marga um að eiga afdrep á rólegum stað þar sem hægt er að hafa það sem best. Ef þú ert að leita að draumahúsi þar sem hátt er til lofts, vítt til veggja og að fallegt umhverfi blasi við þegar horft er út um gluggann þá gæti Hlíðarholt 7 verið eitthvað fyrir þig.
Um er að ræða 110 fm heilsárshús á Selfossi. Húsið var byggt 2019. Úr því er útsýni út á Tungufljót og stendur húsið á 6.500 fm eignarlóð. Í húsinu eru fjögur svefnherbergi og því væri í raun hægt að búa þar allan ársins hring. Það er smekklega innréttað með nútímalegum innréttingum.
Eldhús og stofa renna saman í eitt og er grá sprautulökkuð innrétting í eldhúsinu. Hátt er til lofts í húsinu en sums staðar er tæpra þriggja metra lofthæð. Við húsið er 100 fm verönd og heitur pottur. Hægt er að skoða húsið nánar á fasteignavef mbl.is.