— Morgunblaðið/Eggert Jóhannesson
Langar bílalestir voru áberandi á höfuðborgarsvæðinu síðdegis í gær þegar mikil snjókoma og hálka urðu til að setja umferðina úr skorðum. Ferð sem alla jafna tekur um 20-30 mínútur tók um tvo klukkutíma þegar ástandið var sem verst

Langar bílalestir voru áberandi á höfuðborgarsvæðinu síðdegis í gær þegar mikil snjókoma og hálka urðu til að setja umferðina úr skorðum. Ferð sem alla jafna tekur um 20-30 mínútur tók um tvo klukkutíma þegar ástandið var sem verst. Ekki náðu allir á áfangastað og urðu árekstrar fjölmargir, en engin alvarleg meiðsli hlutust af. Rafmagni sló einnig út og umferðarljós urðu óvirk, en straumleysið varði þó aðeins um stund. Rólegra veðurs má nú vænta en þó vetrarveðurs með éljum eða snjókomu. » 2