[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Birgir Örn Birgisson, fyrrverandi forstjóri Domino's á Íslandi og stjórnarformaður Leitar Capital Partners, hefur fest kaup á 233 milljóna einbýli í Garðabæ ásamt kærustu sinni, Líneyju Pálsdóttur viðskiptafræðingi

Birgir Örn Birgisson, fyrrverandi forstjóri Domino's á Íslandi og stjórnarformaður Leitar Capital Partners, hefur fest kaup á 233 milljóna einbýli í Garðabæ ásamt kærustu sinni, Líneyju Pálsdóttur viðskiptafræðingi. Húsið, sen er við Rjúpnahæð 13, er 248 fm að stærð og var byggt 2016.

Húsið er glæsilegt í alla staði, á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr. Það er klætt með áli með innbrenndum lit. Í húsinu eru gólfsíðir gluggar á efri hæðinni sem hentar vel þar sem fallegt útsýni er úr húsinu.

Birgir og Líney keyptu húsið af lögmönnunum Orra Sigurðssyni og Sögu Ýri Jónsdóttur sem keyptu húsið 2016. Húsið var aldrei auglýst til sölu.