Lovísa Guðmundsdóttir fæddist 6. júní 1946 í Reykjavík. Hún lést 9. desember 2023. Útför hennar fór fram 20. desember 2023.

Ég er í heimsókn hjá henni Gyðu frænku, sem ég heimsæki yfirleitt þegar ég skrepp vestur yfir fjallið. Enginn er heima þar nema stelpa sem er kærasta Kidda Jó. Hún er að baka vöfflur og við sitjum saman við eldhúsborðið og spjöllum saman. Það er gaman að tala við hana.

Þetta eru nánast okkar einu kynni en samt hef ég alltaf munað hana og hugsað hlýlega til hennar í gegnum tímann.

Núna þegar ég sá að hún er dáin langaði mig til að minnast hennar, svo sterk og eftirminnileg er þessi stund við eldhúsborðið hennar Gyðu.

Ég hugsa: „Hvers vegna hef ég ekki leitað eftir frekari kynnum?“ Þetta er ekki í fyrsta skipti sem ég lendi í því að hugsa þannig, of seint.

Nú, hvað geri ég þá? Skrifa smá minningu. Það er aldrei of seint.

Ég sendi ykkur sem þótti vænt um hana innilegar samúðarkveðjur og bið þess að minningarnar um hana megi ylja ykkur um ókomna tíð.

Rúna Knútsdóttir.