Ozzy og Sharon Osbourne í stuði að vanda.
Ozzy og Sharon Osbourne í stuði að vanda. — AFP/Kevin Winter
Ódrepandi Sharon Osbourne flutti nýjustu fréttir af heilsufari bónda síns, málmlistamannsins Ozzys Osbournes, í útvarpsþætti Jackie Brambles í Bretlandi á dögunum. Hann hefði það á heildina litið fínt en ekki væri þó viturlegt fyrir mann með parkinsonsveiki að ferðast til Bretlands á þessum tíma árs

Ódrepandi Sharon Osbourne flutti nýjustu fréttir af heilsufari bónda síns, málmlistamannsins Ozzys Osbournes, í útvarpsþætti Jackie Brambles í Bretlandi á dögunum. Hann hefði það á heildina litið fínt en ekki væri þó viturlegt fyrir mann með parkinsonsveiki að ferðast til Bretlands á þessum tíma árs. Það væri of svalt í veðri fyrir stífa vöðvana. „Ozzy kemur bara seinna,“ sagði hún og bætti við: „En Ozzy er með níu líf – hann er ekki að fara neitt. Félli sprengja þá yrðu þau ein eftir, kakkalakkarnir, Keith Richards og Ozzy.“