Hér segir af ítölskum öndum þegar hið forna Rómaveldi var að byggjast upp – og þær eru óneitanlega kunnuglegar: Andrós er hugrakkur en óheppinn og algerlega undir hælnum á viðskiptajöfrinum frænda sínum, Jóakimíusi

Hér segir af ítölskum öndum þegar hið forna Rómaveldi var að byggjast upp – og þær eru óneitanlega kunnuglegar: Andrós er hugrakkur en óheppinn og algerlega undir hælnum á viðskiptajöfrinum frænda sínum, Jóakimíusi. Vinir og fjölskylda Andrósar eru ekki langt undan, þau Andrósína, Fiðríus, Andrea, Gassíus, Georgíó og strákarnir Rippó, Rappó og Ruppó. Það sama má segja um keppinauta þeirra frænda, Hábeinníus og Rokkafellíus – og óvinina Úlfabófana og Hexíönu.

Allir vegir liggja til Rómar!