Liðstyrkur Breukelen Woodard er komin til FH-inga frá Frömurum.
Liðstyrkur Breukelen Woodard er komin til FH-inga frá Frömurum. — Ljósmynd/FH
Knattspyrnudeild FH hefur gengið frá samningi við bandaríska sóknarmanninn Breukelen Woodard. Hún kemur til félagsins frá Fram. Woodard skoraði níu mörk í 16 leikjum með Fram í 1. deildinni á síðustu leiktíð og tvö mörk í þremur bikarleikjum

Knattspyrnudeild FH hefur gengið frá samningi við bandaríska sóknarmanninn Breukelen Woodard. Hún kemur til félagsins frá Fram. Woodard skoraði níu mörk í 16 leikjum með Fram í 1. deildinni á síðustu leiktíð og tvö mörk í þremur bikarleikjum. Var hún kjörin besti leikmaður kvennaliðsins af félaginu í mótslok. FH hafnaði í sjötta sæti Bestu deildarinnar á síðustu leiktíð og kom mörgum á óvart með því að enda í efri hlutanum sem nýliðar í efstu deild.