— AFP/Jose Jordan
Hitabylgja gengur nú yfir Spán. Hiti mældist hæst um 30 gráður á fimmtudag og föstudag. Á mörgum landsvæðum var hitinn um 10 gráðum hærri en meðalhiti á þessum árstíma. Fólk flykktist á strendur og út á kaffihús en margir þeirra sem nutu hlýjunnar lýstu áhyggjum sínum af loftslagsbreytingum.