30 ára Guðný ólst upp í Hafnarfirði og býr nú í Garðabænum. Hún starfar sem flugumferðarstjóri og er með diplómu í viðburðastjórnun. Helstu áhugamál eru fjölskylda og vinir, hreyfing og útivera. Fjölskylda Maki Guðnýjar er Jóhann Ingi Guðmundsson, f

30 ára Guðný ólst upp í Hafnarfirði og býr nú í Garðabænum. Hún starfar sem flugumferðarstjóri og er með diplómu í viðburðastjórnun. Helstu áhugamál eru fjölskylda og vinir, hreyfing og útivera.


Fjölskylda Maki Guðnýjar er Jóhann Ingi Guðmundsson, f. 1995, flugumferðarstjóri. Sonur þeirra er Guðmundur Orri, f. 2023. Foreldrar Guðnýjar eru J. Katrín Danivalsdóttir, f. 1958, grunnskólakennari, býr í Hafnarfirði, og Tómas Jónsson f. 1959, framhaldsskólakennari og tæknifræðingur, býr í Reykjavík.