Fyrir 4-5 1 dós kókosmjólk ¼ bolli rautt karrímauk (red curry paste) 4 bollar vatn 2 kjúklingateningar 450 g kjúklingabringur eða -lundir, skornar í bita 1 bolli sæt kartafla, afhýdd og skorin í teninga ⅓ bolli hnetusmjör 1 msk tamarind-sósa…

Fyrir 4-5

1 dós kókosmjólk

¼ bolli rautt karrímauk (red curry paste)

4 bollar vatn

2 kjúklingateningar

450 g kjúklingabringur eða -lundir, skornar í bita

1 bolli sæt kartafla, afhýdd og skorin í teninga

⅓ bolli hnetusmjör

1 msk tamarind-sósa eða 1/4 bolli límónusafi

2 msk fiskisósa (fish sauce) eða sojasósa

2 msk púðursykur

½ tsk túrmerik

1 rauð paprika, skorin í þunnar sneiðar

160 g núðlur (rice noodles)

2 bollar baunaspírur

¼ bolli ferskt kóríander

¼ bolli salthnetur

vorlaukur, sneiddur

Hitið þykka hlutann sem er efst í kókosmjólkurdósinni í rúmgóðum potti yfir miðlungsháum hita. Bætið karrímaukinu saman við og látið sjóða saman í um mínútu. Bætið því sem eftir er í kókosmjólkurdósinni saman við ásamt vatni, kjúklingateningum, sætum kartöfluteningum, hnetusmjöri, tamarindsósu, fiskisósu, púðursykri og túrmerik. Látið suðuna koma upp, lækkið hitann og látið sjóða við vægan hita þar til kjúklingurinn er fulleldaður og sætu kartöflurnar mjúkar. Það tekur 7-10 mínútur, eftir því hvað bitarnir eru stórir. Bætið papriku og núðlum í pottinn og sjóðið þar til núðlurnar eru mjúkar, það tekur um fimm mínútur. Bætið baunaspírum saman við og takið síðan af hitanum.

Berið núðlusúpuna fram með kóríander, hökkuðum salthnetum og vorlauk.

Frá ljufmeti.com.