Fyrir 5-6 4-5 kjúklingabringur 1 rauð paprika 1 græn paprika 2 gulrætur ½ blaðlaukur 4-5 hvítlauksgeirar 1 laukur 1 grænt eða rautt chili 2 msk olía 1 dós saxaðir tómatar 1½-2 teningar af kjúklingakrafti 2-3 tsk karrí 2,5 l vatn 1 peli …

Fyrir 5-6

4-5 kjúklingabringur

1 rauð paprika

1 græn paprika

2 gulrætur

½ blaðlaukur

4-5 hvítlauksgeirar

1 laukur

1 grænt eða rautt chili

2 msk olía

1 dós saxaðir tómatar

1½-2 teningar af kjúklingakrafti

2-3 tsk karrí

2,5 l vatn

1 peli rjómi

½-3/4 úr krukku af Heinz-chilitómatsósu

100-150 g rjómaostur

Hitið olíu á pönnu við vægan hita, saxið grænmetið smátt og steikið í smá stund á pönnunni, bara rétt til að fá smá gljáa.

Setjið grænmetið í stóran pott, bætið vatni, chilitómatsósu, karríi, kjúklingateningum og söxuðum tómötum saman við, leyfið þessu að malla á meðan þið steikið kjúklinginn.

Skerið kjúklinginn í litla bita og steikið á pönnu upp úr olíu, kryddið með chili, salti og pipar. Bætið kjúklingnum við súpuna. Látið hana sjóða við vægan hita í 10-15 mín. Að lokum fer rjóminn og rjómaosturinn saman við. Takið ykkur góðan tíma til að laga súpuna, ég leyfði henni að malla við vægan hita í nærri tvær klukkustundir en þess þarf auðvitað ekki. Látið hana þó malla í lágmark 30 mínútur. Bragðbætið súpuna að vild, gæti verið að þið vilduð meira karrí eða meiri pipar. Mikilvægt að smakka hana til!

Berið súpuna fram með sýrðum rjóma, rifnum osti og nachos-flögum, sem hver og einn bætir á sinn disk eftir smekk. Matarmikil súpa sem hressir og kætir.

Frá evalaufeykjaran.is.