Héraðsdómur Ragnhildur Rósa Þórarinsdóttir í héraðsdómi á miðvikudag.
Héraðsdómur Ragnhildur Rósa Þórarinsdóttir í héraðsdómi á miðvikudag. — Morgunblaðið/Árni Sæberg
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Málflutningur fór fram í MÍR-málinu svokallaða fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í vikunni. Mikla athygli vakti þegar málið kom upp á síðasta ári en eins og kom fram í Morgunblaðinu höfðuðu þrír félagsmenn í MÍR, Menningartengslum Íslands og Rússlands,…

Höskuldur Daði Magnússon

hdm@mbl.is

Málflutningur fór fram í MÍR-málinu svokallaða fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í vikunni. Mikla athygli vakti þegar málið kom upp á síðasta ári en eins og kom fram í Morgunblaðinu höfðuðu þrír félagsmenn í MÍR, Menningartengslum Íslands og Rússlands, áður Ráðstjórnarríkjanna, mál gegn samtökunum og kröfðust þess að ákvarðanir aðalfundar yrðu ógiltar. Á fundinum, sem haldinn var 26. júní 2022, var tekin ákvörðun um að hætta rekstri félagsins, afhenda allar eignir félagsins sjálfseignarstofnunni „Menningarsjóðnum MÍR“, og að selja húsnæði félagsins á Hverfisgötu en söluandvirðið á að mynda stofnfé umrædds menningarsjóðs.

MÍR var stofnað árið 1950 og var Halldór Laxness fyrsti forseti félagsins og Þórbergur Þórðarson varaforseti. Félagið var aðalvettvangur menningarlegra samskipta Íslands og Rússlands um áratugaskeið og var með ýmsa menningardagskrá á blómatíma sínum. Ívar H. Jónsson og kona hans, Ragnhildur Rósa Þórarinsdóttir, standa að stefnunni ásamt listakonunni Kjuregej Alexöndru Argunovu. Ívar var sem kunnugt er formaður MÍR í rúma fjóra áratugi.

„Það er nú komið fram í málinu að félagshúsnæðið er metið á 180 milljónir króna og formaður félagsins vill ráðstafa andvirði þess í nýjan sjóð sem félagsmenn munu ekki hafa neitt forræði yfir, enda mun félagið leggjast af ef áætlanir stjórnarinnar ganga eftir,“ segir Hilmar G. Þorsteinsson, lögmaður stefnenda.

Hann segir aðaldeiluefnið í málinu vera fundarboð aðalfundarins. „Einar Daníel Bragason, sem telur sig formann stjórnar félagsins, sagði það fullnægjandi fundarboð að hengja miða í glugga um hásumar þar sem ekkert var fjallað um dagskrá fundarins. Hann gerði ekki neinum félagsmanna viðvart, sem þó voru á póstlista félagsins. Þannig telur hann sér fært að taka ákvörðun um að leggja niður meira en 70 ára gamalt félag með merka sögu, og ráðstafa 180 milljónum króna frá félaginu. … Ég get illa varist þeim grunsemdum að þetta sé gert í eiginhagsmunaskyni,“ segir lögmaðurinn sem segir að meginmarkmið með málaferlunum sé að knýja fram löglegan aðalfund þar sem félagsmönnum gefist tækifæri til að skipa stjórn sem hefur vilja til að vinna að markmiðum félagsins og halda starfsemi þess áfram. Einar hefur hafnað þessum ásökunum eins og kom fram í viðtali við hann í Morgunblaðinu í maí í fyrra.

Ragnhildur Rósa Þórarinsdóttir gaf skýrslu fyrir dóminum fyrir hönd stefnenda en auk hennar komu allir sjö stjórnarmenn MÍR fyrir réttinn. Þá voru og vitni kölluð til, til að mynda Þorvaldur Þorvaldsson, betur þekktur sem Albaníu-Valdi, og Sigurður Þórarinsson, þekktur ginseng-innflytjandi á fyrri tíð. Ingiríður Lúðvíksdóttir er dómari og má búast við dómi innan fjögurra vikna.