England Hákon Rafn Valdimarsson er kominn til Brentford á Englandi.
England Hákon Rafn Valdimarsson er kominn til Brentford á Englandi. — Ljósmynd/Brentford
Íslenski landsliðsmarkvörðurinn Hákon Rafn Valdimarsson er kominn til enska félagsins Brentford frá Elfsborg í Svíþjóð. Brentford greiðir um 2,6 milljónir punda fyrir markvörðinn. Hákon gerði samning við enska úrvalsdeildarfélagsið til ársins 2028 með möguleika á framlengingu til ársins 2030

Íslenski landsliðsmarkvörðurinn Hákon Rafn Valdimarsson er kominn til enska félagsins Brentford frá Elfsborg í Svíþjóð. Brentford greiðir um 2,6 milljónir punda fyrir markvörðinn. Hákon gerði samning við enska úrvalsdeildarfélagsið til ársins 2028 með möguleika á framlengingu til ársins 2030. Hann var valinn besti markvörður sænsku deildarinnar á síðustu leiktíð, þar sem hann hélt 13 sinnum hreinu er Elfsborg var hársbreidd frá því að verða sænskur meistari.