Slys Leitin bar ekki árangur.
Slys Leitin bar ekki árangur. — Morgunblaðið/Eggert
Vinnuslysið í Grindavík, þegar maður féll í sprungu við störf á svæðinu, er til rannsóknar hjá Vinnueftirlitinu. Stofnunin hefur kallað eftir lögregluskýrslu um málið. Þetta staðfestir stofnunin í svari við fyrirspurn Morgunblaðsins

Vinnuslysið í Grindavík, þegar maður féll í sprungu við störf á svæðinu, er til rannsóknar hjá Vinnueftirlitinu. Stofnunin hefur kallað eftir lögregluskýrslu um málið. Þetta staðfestir stofnunin í svari við fyrirspurn Morgunblaðsins.

Vinnuslysið er í svarinu sagt einstakt því það tengist náttúruhamförum og björgunaraðgerðir hafi staðið yfir í lengri tíma undir stjórn lögreglustjórans á Suðurnesjum, sem fer með aðgerðastjórn á svæðinu. Rannsókn málsins taki mið af því að vettvangur hafi breyst verulega frá slysi. Mikil leit var gerð á svæðinu en henni var hætt þar sem ekki var talið forsvaranlegt að stefna lífi leitarmanna í hættu.