Breiðablik Barbára Sól Gísladóttir er komin til Breiðabliks.
Breiðablik Barbára Sól Gísladóttir er komin til Breiðabliks. — Morgunblaðið/Óttar
Knattspyrnukonan Barbára Sól Gísladóttir er gengin til liðs við Breiðablik frá Selfossi og hefur samið við félagið til tveggja ára. Barbára er 22 ára gömul, hefur leikið ýmsar stöður á vellinum og hefur spilað með meistaraflokki Selfoss frá 15 ára aldri

Knattspyrnukonan Barbára Sól Gísladóttir er gengin til liðs við Breiðablik frá Selfossi og hefur samið við félagið til tveggja ára. Barbára er 22 ára gömul, hefur leikið ýmsar stöður á vellinum og hefur spilað með meistaraflokki Selfoss frá 15 ára aldri. Hún lék veturinn 2021-22 með Bröndby í dönsku úrvalsdeildinni og skoraði þar tvö mörk í tíu leikjum. Barbára hefur spilað 92 leiki fyrir Selfoss í úrvalsdeildinni og skorað 9 mörk.