Dýr Albert er eftirsóttur vegna frammistöðu sinnar á leiktíðinni.
Dýr Albert er eftirsóttur vegna frammistöðu sinnar á leiktíðinni. — Morgunblaðið/Eggert
Ítölsku knattspyrnufélögin Fiorentina og Lazio hafa hafið viðræður um kaup á Alberti Guðmundssyni frá Genoa. Þetta segir ítalski netmiðillinn Tuttomercatoweb. Genoa vill hins vegar 25-30 milljónir evra fyrir Albert, sem gerir félögunum erfitt fyrir

Ítölsku knattspyrnufélögin Fiorentina og Lazio hafa hafið viðræður um kaup á Alberti Guðmundssyni frá Genoa. Þetta segir ítalski netmiðillinn Tuttomercatoweb. Genoa vill hins vegar 25-30 milljónir evra fyrir Albert, sem gerir félögunum erfitt fyrir. Genoa stendur vel að vígi eftir að hafa selt Radu Dragusin til Tottenham og vill ekki láta annan lykilmann af hendi á meðan keppnistímabilið stendur yfir. Albert er fjórði markahæsti leikmaður ítölsku A-deildarinnar með níu mörk