Glódís Perla Viggósdóttir og liðsfélagar hennar í þýska meistaraliðinu Bayern München eru úr leik í Meistaradeild Evrópu í fótbolta eftir 2:2-jafntefli á heimavelli gegn París SG í gærkvöldi. Bayern hefði farið í átta liða úrslit með sigri og var með 2:1-forystu þegar skammt var eftir
Glódís Perla Viggósdóttir og liðsfélagar hennar í þýska meistaraliðinu Bayern München eru úr leik í Meistaradeild Evrópu í fótbolta eftir 2:2-jafntefli á heimavelli gegn París SG í gærkvöldi. Bayern hefði farið í átta liða úrslit með sigri og var með 2:1-forystu þegar skammt var eftir. Hin enska Georgia Stanway skoraði hins vegar sjálfsmark á 88. mínútu franska liðið fór áfram. Glódís lék allan leikinn með Bayern og var fyrirliði.