Ingvar Þór Guðjónsson hefur verið ráðinn aðalþjálfari kvennaliðs Hauka í körfubolta. Hann tekur við liðinu af Bjarna Magnússyni sem lét af störfum á dögunum. Þau Emil Barja og Sigrún Sjöfn Ámundadóttir verða Ingvari til halds og traust en þau léku bæði með félaginu á sínum tíma
Ingvar Þór Guðjónsson hefur verið ráðinn aðalþjálfari kvennaliðs Hauka í körfubolta. Hann tekur við liðinu af Bjarna Magnússyni sem lét af störfum á dögunum. Þau Emil Barja og Sigrún Sjöfn Ámundadóttir verða Ingvari til halds og traust en þau léku bæði með félaginu á sínum tíma. Ingvar hefur áður stýrt Haukum og varð liðið Íslandsmeistari undir hans stjórn árið 2018. Hann hætti með liðið í kjölfarið en var ráðinn aftur árið 2020 sem aðstoðarþjálfari.