Færeyska tónlistarkonan Eivør fer í tónleikaferð um Evrópu ásamt norsku tónlistarkonunni Sylvaine í október í tengslum við útgáfu platna þeirra. „Ég og hljómsveitin mín bíðum spennt eftir því að hefja þennan nýja kafla
Færeyska tónlistarkonan Eivør fer í tónleikaferð um Evrópu ásamt norsku tónlistarkonunni Sylvaine í október í tengslum við útgáfu platna þeirra. „Ég og hljómsveitin mín bíðum spennt eftir því að hefja þennan nýja kafla. Tónleikaferðalagið nær til Þýskalands, Hollands, Belgíu, Bretlands, Frakklands, Sviss, Austurríkis, Ungverjalands, Danmerkur, Svíþjóðar og Noregs,“ skrifar Eivør í tilkynningu. Miðasala er hafin og fer fram á eivor.com.