Krókaleið Sitt sýnist hverjum um að kvótasetja grásleppuveiðar. Óvinsældir málsins innan VG eru sagðar ástæða þess að þingnefnd flytur málið.
Krókaleið Sitt sýnist hverjum um að kvótasetja grásleppuveiðar. Óvinsældir málsins innan VG eru sagðar ástæða þess að þingnefnd flytur málið. — Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, segir að brögðum sé nú beitt til að koma í veg fyrir að Vinstrihreyfingin – grænt framboð (VG) beri ábyrgð á kvótasetningu grásleppuveiða vegna þess hve óvinsælt málið sé innan raða flokksins

Gunnlaugur Snær Ólafsson

gso@mbl.is

Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, segir að brögðum sé nú beitt til að koma í veg fyrir að Vinstrihreyfingin – grænt framboð (VG) beri ábyrgð á kvótasetningu grásleppuveiða vegna þess hve óvinsælt málið sé innan raða flokksins. Þórarinn Ingi Pétursson, þingmaður Framsóknarflokksins og formaður atvinnuveganefndar, viðurkenndi í ræðupúlti Alþingis á þriðjudag að meirihluti nefndarinnar hefði lagt frumvarp um kvótasetningu fram að beiðni matvælaráðherra, Svandísar Svavarsdóttur, sem nú er í veikindaleyfi.

Frumvarpið um kvótasetningu grásleppuveiða sem meirihluti atvinnuveganefndar kynnti á þriðjudag er samhljóða frumvarpi sem matvælaráðherra kynnti á vorþingi á síðasta ári en fékkst ekki afgreitt fyrir þinglok.

„Þetta er bara döpur staða. Það er sorglegt að horfa upp á að haldið sé áfram að kvótasetja auðlindirnar okkar eins og það hefur verið gert með fyrirheit um að það eigi að skila sér til samfélagsins, en það hefur ekki gerst. Það sjá það allir að þau eru ekki að fylgja stefnu síns flokks og að grásrótin sé óánægð með að þau hafi snúið frá sjávarútvegsstefnunni sinni. Þau voru oft búin að boða stefnu sem sneri að því að verja sjávarbyggðirnar og vernda það sem hægt væri að vernda úr því sem búið er að skemma. En svona fór nú það og nú á að kvótasetja eina ferðina enn,“ segir Inga innt álits á málinu.

Sagt þaulskipulagt

„Matvælaráðherra var gerður afturreka með þetta frumvarp sitt í fyrra vor. Það var búið að ganga í gegnum atvinnuveganefnnd, það var búið að afla umsagna og málið alveg tilbúið fyrir þingið, en grasrót Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs var ekki par hrifin af frumvarpinu. Núna í haust biður hún síðan formann atvinnuveganefndar um að flytja málið fyrir sig, ekki í hennar nafni en í nafni meirihluta atvinnuveganefndar. Ég hef aldrei orðið vitni að því síðan ég kom á þing að meirihluti fastanefndar er beðinn um að taka að sér eitthvað mál og flytja það fyrir þingi. Venjan er sú að sá sem ber veg og vanda af málinu – í þessu tilviki kvótasetningu grásleppu – er matvælaráðherra, Svandís Svavarsdóttir,“ segir hún.

Veikindi ráðherra hafa ekkert með það að gera hvernig málinu er teflt fram að sögn Ingu, sem segir Svandísi hafa getað lagt fram frumvarpið allt frá því að þing hófst síðasta haust. Fullyrðir hún að um sé að ræða þaulskipulagða aðgerð í þeim tilgangi að fría VG ábyrgð á innihaldi frumvarpsins. „Þetta er gert með einbeittum vilja. Yfirleitt eru frumvörp sem sem lögð eru fram af nefnd unninn af nefndinni en ekki fengin frá einhverjum ráðherra sem þorði ekki að koma með það sjálfur. Þetta er einstakt.“

Spurningar vakna

Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda, lýsir undrun sinni á því hvernig frumvarpið sé lagt fyrir Alþingi. „Það er mjög sjaldgæft að einhver nefnd flytji frumvarp. Það á kannski við ef öll nefndin er sammála og það sé eitthvað akútmál en það að gera þetta í tengslum við mál eins og grásleppuna er mjög sjaldgæft. Þetta er gert að beiðni matvælaráðherra og einkennilegt að hann skuli ekki bara hafa endurflutt frumvarpið. Það eru margar spurningar sem vakna við svona lagað.“