30 ára Sylvía ólst upp á Seltjarnarnesi en býr í Reykjavík. Hún er sjúkraþjálfari frá HÍ og starfar á Reykjalundi. Hún er einnig tónlistarkona og er bassaleikari í hljómsveitinni FLOTT. Önnur áhugamál en tónlist eru handavinna
30 ára Sylvía ólst upp á Seltjarnarnesi en býr í Reykjavík. Hún er sjúkraþjálfari frá HÍ og starfar á Reykjalundi. Hún er einnig tónlistarkona og er bassaleikari í hljómsveitinni FLOTT. Önnur áhugamál en tónlist eru handavinna.
Fjölskylda Eiginmaður Sylvíu er Hannes Bjartmar Jónsson, f. 1983, verkfræðingur hjá Reykjavíkurborg. Sonur þeirra er Viggó, f. 2023. Foreldrar Sylvíu eru hjónin Sigurbjörg Eðvarðsdóttir, f. 1958, frönskukennari og leiðsögumaður, og Rémi Spilliaert, f. 1958, sameindalíffræðingur. Þau eru búsett á Seltjarnarnesi.