Brennisteinsfjöll Stutt gæti verið í næstu jarðhræringar.
Brennisteinsfjöll Stutt gæti verið í næstu jarðhræringar. — Morgunblaðið/RAX
Engar mælingar benda til þess að kvika sé að safnast saman eða brjóta sér leið undir Brennisteinsfjöllum. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Veðurstofa Íslands sendi frá sér í gær. Kristín Jónsdóttir, deildarstjóri á Veðurstofunni, segir að kominn…

Engar mælingar benda til þess að kvika sé að safnast saman eða brjóta sér leið undir Brennisteinsfjöllum.

Þetta kemur fram í tilkynningu sem Veðurstofa Íslands sendi frá sér í gær. Kristín Jónsdóttir, deildarstjóri á Veðurstofunni, segir að kominn sé tími á annan Brennisteinsfjallaskjálfta en síðustu stóru skjálftar sem kenndir eru við fjöllin mældust um 6 að stærð og eru stærstu skjálftar sem hafa riðið yfir á Reykjanesskaganum.

„Um 20 skjálftar mældust um síðustu helgi á milli Húsfells og Bláfjalla. Flestir rétt eftir hádegi á sunnudaginn, 28. janúar. Stærstu skjálftarnir mældust 3,1 kl. 05:28 á laugardag (27. janúar) og 2,9 kl. 12:32 á sunnudag, 28. janúar.

Ein tilkynning barst Veðurstofunni um að sá fyrri hefði fundist í Breiðholti. Tveir smáskjálftar mældust á svæðinu á mánudag, báðir undir 1 að stærð, en ekki hafa mælst skjálftar á svæðinu síðan þá. Mögulegt er þó að virknin taki sig upp á ný,“ segir í tilkynningunni.

Þar segir enn fremur að skjálftarnir hafi átt upptök sín í Húsfellsbruna, norðarlega á misgengi sem hefur verið kallað Hvalhnúksmisgengið, sem er um 17 kílómetra langt norður-suðlægt sniðgengi og nær frá Hlíðarvatni í suðri.

Það er líklega ábyrgt fyrir stærstu skjálftum sem mælst hafa á Reykjanesskaganum, svokölluðum Brennisteinsfjallaskjálftum sem urðu árin 1929 og 1968 og voru um 6 að stærð.

Haft er eftir Kristínu Jónsdóttur að engar mælingar bendi til þess að kvika sé að safnast saman undir Brennisteinsfjöllum. „Skjálftavirknin sem mældist um helgina er ekki vegna kvikuhreyfinga eins og sést hefur í tengslum við jarðhræringar við Fagradalsfjall og norðan Grindavíkur,“ segir Kristín.

Segir í tilkynningunni að skjálftarnir sem urðu á þessu svæði hafi orðið vegna landreksspennu sem hleðst upp þegar Norður-Ameríkuflekinn og Evrópuflekinn hreyfast hvor fram hjá öðrum.

Slík spenna losni reglulega í stærri skjálftum sem talið er að ríði yfir skagann á um 50 ára fresti. Má því segja að kominn sé tími á annan Brennisteinsfjallaskjálfta, óháð öðrum jarðhræringum.

Ef kvika væri að safnast þarna saman ættu að sjást merki um landris í gögnum Veðurstofunnar líkt og sást við Svartsengi og Fagradalsfjall. Kristín segir mikilvægt að vera meðvituð um að skjálftar sem eigi upptök á Hvalhnúksmisgenginu séu stærstu skjálftar sem hafa riðið yfir á Reykjanesskaga.