Þótt mýrin um mýrina verði frá mýrinni í þágufalli dugir ekki að halda beint af augum til „mýrinnar“. Mýrarinnar skal það vera

Þótt mýrin um mýrina verði frá mýrinni í þágufalli dugir ekki að halda beint af augum til „mýrinnar“. Mýrarinnar skal það vera. „Fjölmennt var í opnun hönnunarbúðarinnar Mýrarinnar“ segir í Fréttablaðinu 2012 og „Andi mýrarinnar leysist úr læðingi á heiðum sumardögum og björtum sumarnóttum…“ Sr. Bjarni Sigurðsson í Mbl. 1965.