Nói Síríus hefur innkallað allar pakkningar af Nóa Kroppi, 200 g, með vörunúmerinu 11663 og söludag fyrir 28.05. 2025. Varan er ekki hættuleg neyslu, nema þeim sem eru með hnetuofnæmi. Í ljós kom að þessi framleiðslulota af Nóa Kroppi hafði blandast …
Nói Síríus hefur innkallað allar pakkningar af Nóa Kroppi, 200 g, með vörunúmerinu 11663 og söludag fyrir 28.05. 2025. Varan er ekki hættuleg neyslu, nema þeim sem eru með hnetuofnæmi.
Í ljós kom að þessi framleiðslulota af Nóa Kroppi hafði blandast saman við súkkulaðihúðaðar vörur með heslihnetum, sem eru þekktur ofnæmis- og óþolsvaldur.
Sökum neytendaverndar var því ákveðið að innkalla þessa lotu og er ný framleiðslulota á leið í verslanir á næstu dögum.