„Þúsundir hafa verið látin yfirgefa …“ Eðlilegt að einhver vandræðagangur verði á kynbreytingatímum í málfræði. Þúsundir eru kvenkyns og eru þá látnar gera hitt eða þetta

„Þúsundir hafa verið látin yfirgefa …“ Eðlilegt að einhver vandræðagangur verði á kynbreytingatímum í málfræði. Þúsundir eru kvenkyns og eru þá látnar gera hitt eða þetta. Víst er þúsund til í hvorugkyni: „Mörg þúsund hafa verið látin yfirgefa …“ En kvenkyns-fleirtalan þúsundir tíðkast um fjölda sem ekki er nákvæmlega tilteki nn.