Sir Ozzy Osbourne hljómar vel.
Sir Ozzy Osbourne hljómar vel. — AFP/Kevin Winter
Riddari Rob Halford, söngvari breska málmbandsins Judas Priest, hefur hvatt Karl Bretakonung til að slá starfsbróður sinn, Ozzy Osbourne, til riddara. „Eigi einhver það skilið, þá er það Ozzy Osbourne

Riddari Rob Halford, söngvari breska málmbandsins Judas Priest, hefur hvatt Karl Bretakonung til að slá starfsbróður sinn, Ozzy Osbourne, til riddara. „Eigi einhver það skilið, þá er það Ozzy Osbourne. Þó ekki nema væri fyrir alla gleðina sem hann hefur fært okkur gegnum tíðina,“ segir Halford í samtali við tímaritið Classic Rock. Hér er hann ekki að finna upp hjólið, en fleiri hafa barist fyrir þessu á umliðnum árum, svo sem þingmenn frá Birmingham, heimaborg Ozzys, og á síðasta ári staðfesti þar til bært ráðuneyti að söngvarinn kæmi til álita. Á hinn bóginn væru margir um hituna og engu hægt að lofa.