Norður
♠ ÁDG
♥ --
♦ ÁD109862
♣ 965
Vestur
♠ 10654
♥ KD983
♦ 4
♣ Á84
Austur
♠ 987
♥ 7642
♦ 73
♣ DG102
Suður
♠ K32
♥ ÁG105
♦ KG5
♣ K73
Suður spilar 6♦.
„Ég hefði betur fylgt tilfinningunni.“ Gunnlaugur Sævarsson hélt á spilum suðurs í tvímenningi Bridshátíðar og opnaði á einu grandi. Vestur hugsaði sig um eitt andartak en sagði svo pass. Kristján Már Gunnarsson í norður yfirfærði í tígul og síðan lá leiðin markvisst upp í slemmu. Á þeirri vegferð hafði norður sýnt stuttlit í hjarta og því valdi vestur að spila út hlutlausum spaða. Vel heppnað, því hjartakóngurinn gefur slemmuna á augabragði.
Allt snýst um laufásinn og besti möguleikinn virðist sá að treysta á ásinn í austur. En hik vesturs yfir grandinu truflaði Gulla. Hann tók tvisvar tromp og spilaði hjartagosa af rælni – drottning og tromp. Nú var komin upp ný staða. Ef vestur á laufás OG hjartakóng má spila honum inn á blankan laufás í þriggja spila endastöðu. „Ahh. Of langsótt,“ hugsaði Gulli og spilaði laufi á kóng. Einn niður.