Ambika Mod og Leo Woodall.
Ambika Mod og Leo Woodall. — Netflix
Ást One Day nefnist nýr breskur myndaflokkur sem kemur inn á Netflix á fimmtudaginn. Þar er hermt af Dexter og Emmu sem þurfa að halda hvort í sína áttina eftir að hafa aðeins þekkst í einn dag. Þau gleyma samt aldrei hvort öðru og þróa með sér náið …

Ást One Day nefnist nýr breskur myndaflokkur sem kemur inn á Netflix á fimmtudaginn. Þar er hermt af Dexter og Emmu sem þurfa að halda hvort í sína áttina eftir að hafa aðeins þekkst í einn dag. Þau gleyma samt aldrei hvort öðru og þróa með sér náið samband sem áhorfendur fá að skyggnast inn í í einn dag á ári, 15. júlí, í tuttugu ár. Ambika Mod og Leo Woodall leika aðalhlutverkin en höfundur er Nicole Taylor.