Við sundin Geldinganesið er norðan við Grafarvogshverfið í Reykjavík.
Við sundin Geldinganesið er norðan við Grafarvogshverfið í Reykjavík. — Morgunblaðið/Ingólfur Guðmundsson
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Dr. Bjarni Reynarsson skipulagsfræðingur segir tilefni til að endurmeta skipulag á höfuðborgarsvæðinu í ljósi aukinnar eldvirkni suður og austur af svæðinu. Þá sé skynsamlegt að undirbúa lagningu Sundabrautar og aðliggjandi íbúabyggð á norðurhluta…

Baldur Arnarson

baldura@mbl.is

Dr. Bjarni Reynarsson skipulagsfræðingur segir tilefni til að endurmeta skipulag á höfuðborgarsvæðinu í ljósi aukinnar eldvirkni suður og austur af svæðinu. Þá sé skynsamlegt að undirbúa lagningu Sundabrautar og aðliggjandi íbúabyggð á norðurhluta svæðisins, auk þess sem vatnsvernd hindri byggðaþróun til austurs.

Bjarni stýrði gerð aðalskipulags Reykjavíkur 1980 til 2000 og þekkir því vel til byggðaþróunar. Fjallað er um þau mál í bókinni Borgir og borgarskipulag sem Bjarni skrifaði. Árið 2017 ritstýrði hann bókinni Reykjavík á tímamótum. Þar fjallar Árni Hjartarson jarðfræðingur um náttúruvá á höfuðborgarsvæðinu.

Bjarni segir Geldinganes bjóða upp á um 200 hektara af byggingarlandi sem sé álíka stórt svæði og 101 Reykjavík. Það sé þéttbýlasta svæði Reykjavíkur en samkvæmt Hagstofunni bjuggu þar um 17.100 manns í byrjun árs 2023. Fullt tilefni sé til að endurmeta skipulag höfuðborgarsvæðisins við suður- og austurjaðar svæðisins. Þá m.t.t. hugsanlegs hraunflæðis ef það gýs.

Ekki hætta til vesturs

„Allur vesturhluti Reykjavíkur er reistur á Reykjavíkurgrágrýtinu en það er hraun sem rann á hlýskeiðum ísaldar. Þar er ekki nein hætta á eldsumbrotum. Það eru sprungur við austurhluta höfuðborgarsvæðisins eins og hefur verið sýnt fram á með kortum. Það er skynsamlegra að byggja norður á bóginn því hraun hafa runnið við Kapelluhraun í Hafnarfirði og alla leið niður í Elliðaár í Reykjavík. Það gæti gerst aftur. Aftur á móti erum við komin á blágrýtisbeltið á Kjalarnesi og með Sundabrautinni opnast því mikið byggingarsvæði til norðurs,“ segir Bjarni.

Rétt sé að hafa hraðar hendur við að undirbúa Sundabraut en slíkt sé löngu tímabært. „Þetta er líka flóttaleið út úr borginni sem er mjög mikilvægt,“ segir Bjarni.

Höf.: Baldur Arnarson