Þór/KA hefur fengið til liðs við sig tvær landsliðskonur í knattspyrnu fyrir komandi keppnistímabil. Það eru Lidija Kulis, 31 árs framherji frá Bosníu, og Lara Ivanusa, 27 ára miðjumaður frá Slóveníu
Þór/KA hefur fengið til liðs við sig tvær landsliðskonur í knattspyrnu fyrir komandi keppnistímabil. Það eru Lidija Kulis, 31 árs framherji frá Bosníu, og Lara Ivanusa, 27 ára miðjumaður frá Slóveníu. Þær koma báðar frá ZNK Split í Króatíu og léku báðar þar á undan með Ferencváros í Ungverjalandi og Glasgow City í Skotlandi, auk fleiri liða. Lidija lék m.a. lengi í Þýskalandi með Turbine Potsdam og Köln, sem og AC Milan á Ítalíu.