Grímur Þór Gíslason, framkvæmdastjóri Gríms kokks.
Grímur Þór Gíslason, framkvæmdastjóri Gríms kokks.
Matvælaframleiðandinn Grímur kokkur jók hlutafé sitt á dögunum. Grímur Þór Gíslason, framkvæmdastjóri Gríms kokks, segir í samtali við ViðskiptaMoggann að hlutafjáraukningin sé liður í að styrkja stoðirnar undir fyrirtækið og ýta undir framtíðarvöxt

Matvælaframleiðandinn Grímur kokkur jók hlutafé sitt á dögunum. Grímur Þór Gíslason, framkvæmdastjóri Gríms kokks, segir í samtali við ViðskiptaMoggann að hlutafjáraukningin sé liður í að styrkja stoðirnar undir fyrirtækið og ýta undir framtíðarvöxt.

„Með þessu aukna hlutafé erum við að styrkja stöðu okkar en það hefur verið fín aukning hjá okkur undanfarið,“ segir Grímur.

Spurður hvernig reksturinn hafi gengið á undanförnum misserum segir Grímur að hann hafi gengið ágætlega þó svo að heimsfaraldurinn hafi reynst fyrirtækinu erfiður.

„Covid kenndi okkur heilmikið og varð til þess að við fórum í gegnum mikið hagræðingarferli. Við fórum að vélvæða mikið hjá okkur og það skilaði sér í bættri afkomu.“

Grímur kokkur er með starfsemi í Vestmannaeyjum og framleiðir tilbúin matvæli, aðallega fiskrétti og grænmetisrétti. Fyrir utan hefðbundna fiskrétti framleiðir félagið einnig súpur eins og humar- og sjávarréttarsúpur.

„Við höfum líka framleitt veganrétti,“ segir Grímur og bætir við að þeir seljist ekki mikið í smásölu en mikill vöxtur hafi orðið í grænmetisréttum á mötuneytismarkaðnum.

„Við stefnum á að auka hlutdeild okkar á mötuneytismarkaðnum en inni á þeim markaði eru líka veitingastaðirnir og kaffihúsin. Við sjáum mikil tækifæri í því. Það er svo gífurleg samkeppni á smásölumarkaðnum en það hefur þó líka gengið ágætlega hjá okkur þar.“

Grímur segir að starfsemin skiptist nokkurn veginn jafnt milli mötuneytismarkaðarins og smásölunnar.

„Þetta skiptist um það bil 60 prósent á móti 40 prósentum. Við teljum að mötuneytismarkaðurinn muni vaxa þegar fram líða stundir og viljum því auka hlutdeild okkar þar,“ segir Grímur.