30 ára Benedikt er Húsvíkingur en býr í Vogunum í Reykjavík. Hann er með BS-gráðu í sjávarútvegsfræði frá Háskólanum á Akureyri en starfar sem ráðgjafi á fyrirtækjasviði Símans. Áhugamálin eru golf og fótbolti
30 ára Benedikt er Húsvíkingur en býr í Vogunum í Reykjavík. Hann er með BS-gráðu í sjávarútvegsfræði frá Háskólanum á Akureyri en starfar sem ráðgjafi á fyrirtækjasviði Símans. Áhugamálin eru golf og fótbolti.
Fjölskylda Unnusta Benedikts er Berglind Héðinsdóttir, f. 1996, er í meistaranámi í sjúkraþjálfun við Háskóla Íslands. Sonur þeirra er Baldur Þór, f. 2023. Foreldrar Benedikts eru hjónin Hulda Jónsdóttir, f. 1959, hárgreiðslumeistari og Jóhann Gunnarsson, f. 1957, skipstjóri, búsett á Húsavík.