Fjármálaeftirlit Frakklands gerði í vikunni húsleit á aðalskrifstofu kínverska tæknifyrirtækisins Huawei í Frakklandi. Heimildarmaður AFP sagði að húsleitin tengdist frumrannsókn á meintri óviðeigandi hegðun fyrirtækisins
Fjármálaeftirlit Frakklands gerði í vikunni húsleit á aðalskrifstofu kínverska tæknifyrirtækisins Huawei í Frakklandi. Heimildarmaður AFP sagði að húsleitin tengdist frumrannsókn á meintri óviðeigandi hegðun fyrirtækisins. Ekki kom fram hvers eðlis sú hegðun væri, en undir það hugtak falla t.d. spilling og mútur.
Huawei rekur sex rannsóknar- og hönnunarstofur í Frakklandi og er að byggja verksmiðju í Alsace, þá fyrstu utan Kína.